VÍKIN

Íslenska kvikmyndin Víkin eftir Braga Þór Hinriksson verður frumsýnd hérlendis 30. október í Sambíóunum. Hér má sjá fyrstu stikluna úr myndinni. Örn Árnason, Margrét Ákadóttir og Leifur Sigurðsson fara með aðalhlutverk í myndinni sem er tekin upp í Fljótavík á Hornströndum sem er einn afskekktasti staður Íslands. 

Víkin fjallar um óhamingjusöm hjón sem þola varla að vera í návist hvors annars en fara þó reglulega saman í frí á Hornströndum þar sem þau fá frið frá skarkala heimsins. 

Sumarfríinu er snúið á hvolf þegar bandarískur ferðamaður bankar upp á og tekur þau í gíslingu í annarlegum tilgangi sem skekur hjónaband þeirra og tilveru. Í kjölfarið hefst barátta upp á líf og dauða og gömul leyndarmál á milli hjónanna, sem ekki þola dagsljósið, koma upp á yfirborðið. 

Þetta er í fyrsta skipti sem Örn Árnason leikur ekki grínhlutverk og því sýnir hann á sér splunkunýja hlið. 


Frá tökustað